Samvinnuþýði
Samvinnuþýði endurspeglar mun á milli einstaklinga í því hversu mikið þeir leggja upp úr samvinnu og félagslegri sátt.

Samvinnuþýði endurspeglar mun á milli einstaklinga í því hversu mikið þeir leggja upp úr samvinnu og félagslegri sátt. Samvinnuþýtt fólk metur mikils að koma vel saman við aðra.
Það er því tillitssamt, vinalegt, örlátt, hjálpsamt og tilbúið að miðla málum þegar hagsmunir þess rekast á hagsmuni annarra. Samvinnuþýtt fólk hefur einnig bjartsýna sýn á mannlegt eðli. Það telur að fólk sé í grundvallaratriðum heiðarlegt, heilsteypt og traustsins vert.
Fólk sem skorar lágt á samvinnuþýði setur eigin hagsmuni ofar því að koma vel saman við aðra. Það lætur sig velferð annarra almennt litlu skipta og er því ólíklegt til að leggja sig fram fyrir aðra. Stundum veldur tortryggni þess í garð hvata annarra því að það verður grunsamt, óvinveitt og ósamvinnuþýtt.
Samvinnuþýði er augljóslega kostur þegar kemur að því að öðlast og viðhalda vinsældum. Fólki líkar betur við samvinnuþýtt fólk en ósamvinnuþýtt. Á hinn bóginn kemur samvinnuþýði ekki að gagni í aðstæðum sem krefjast harðra eða alveg hlutlægra ákvarðana. Ósamvinnuþýtt fólk getur orðið framúrskarandi vísindamenn, gagnrýnendur eða hermenn.
Traust
Einstaklingur sem skorar hátt á trausti gerir ráð fyrir að flest fólk sé sanngjarnt, heiðarlegt og hafi góðan ásetning. Þeir sem skora lágt á trausti líta á aðra sem eigingjarna, undirförula og hugsanlega hættulega.
Siðferði
Þeir sem skora hátt á þessum kvarða sjá enga þörf fyrir yfirdrepsskap eða að beita aðra klækjum og eru því hreinskilnir, opinskáir og einlægir. Þeir sem skora lágt telja að nokkur blekking sé nauðsynleg í félagslegum samskiptum. Fólki finnst tiltölulega auðvelt að tengjast þeim hreinskilnu sem skora hátt á þessum kvarða. Því finnst almennt erfiðara að tengjast þeim sem skora lágt og eru síður hreinskilnir. Taka skal skýrt fram að þeir sem skora lágt eru hvorki siðlausir né án lífsgilda; þeir eru einfaldlega varkárari og síður tilbúnir til að segja allan sannleikann umbúðalaust.
Óeigingirni
Óeigingjörnu fólki finnst innilega gefandi að hjálpa öðrum. Þar af leiðandi er það almennt reiðubúið að aðstoða þá sem eru hjálparþurfi. Óeigingjörnu fólki finnst það að gera eitthvað fyrir aðra vera leið til að rækta sjálft sig fremur en sjálfsfórn. Þeir sem skora lágt á þessum kvarða hafa ekki sérstaklega gaman af því að hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda. Beiðnir um aðstoð finnast þeim vera kvöð fremur en tækifæri til að vaxa.
Samvinna
Einstaklingar sem skora hátt á þessum kvarða forðast árekstra. Þeir eru fúsir til að gera málamiðlanir eða setja eigin þarfir til hliðar til að eiga góð samskipti við aðra. Þeir sem skora lágt á þessum kvarða eru líklegri til að beita aðra þrýstingi til að fá sínu framgengt.
Hógværð
Þeir sem skora hátt á þessum kvarða vilja ekki halda því fram að þeir séu betri en annað fólk. Í sumum tilfellum getur þetta viðhorf sprottið af litlu sjálfstrausti eða lágu sjálfsmati. Engu að síður finnst sumu fólki með gott sjálfsmat óhógværð ósæmileg. Þeir sem eru reiðubúnir að lýsa sjálfum sér sem öðrum fremri eru gjarnan álitnir óþægilega hrokafullir af öðru fólki.
Samúð
Fólk sem skorar hátt á þessum kvarða er hjartahlýtt og umhyggjusamt. Það finnur til með öðrum og er auðvelt að vekja hjá því meðaumkun. Þeir sem skora lágt láta þjáningar annarra ekki hafa mikil áhrif á sig. Þeir eru stoltir af því að fella hlutlæga dóma sem byggjast á rökum. Þeim er meira umhugað um sannleika og óhlutdrægt réttlæti en miskunn.